Hvað við gerum
Gulrót er hvatakerfi fyrir börn og foreldra. Börnin klára verkefni, foreldri samþykkir og stigin safnast upp í verðlaun sem börnin völdu sjálf.
Gert af fjölskyldu, fyrir fjölskyldur.
ADHD er hluti af daglegu lífi í okkar fjölskyldu. Við bjuggum til Gulrót til að koma skipulagi á hversdaginn og fá alla til að hjálpast að.
Gulrót er hvatakerfi fyrir börn og foreldra. Börnin klára verkefni, foreldri samþykkir og stigin safnast upp í verðlaun sem börnin völdu sjálf.
Gulrót er ekki bara verkefnalisti. Börnin sjá hvað þarf að gera og hvað þau eru að safna fyrir, og foreldrar, ömmur, afar og bónusforeldrar geta öll verið með.
Gulrót er hönnuð og rekin á Íslandi. Spurningar og hugmyndir eru alltaf velkomnar á gulrot@gulrot.is.